Lækjartúnsættarmót 19.-21. júní 2009

Hið árlega ættarmót verður haldið í íþróttahúsinu í Þykkvabæ helgina 19. - 21. júní nk. Aðstaðan þar er öll til fyrirmyndar, snyrtilegt hús, góð tjaldstæði með rafmagni, gott leiksvæði með skemmtilegum leiktækjum og svo er örstutt í fjöruna. Sjá nánar: http://www.rangarthingytra.is/sidur/tjaldst.htm

Við fáum húsið á föstudegi og höfum það alla helgina.

  
Sameiginlegt kaffihlaðborð verður á laugardeginum samkvæmt venju og grillað um kvöldið.


Kostnaður er eftirfarandi:

Leiga á húsi frá föstudegi til sunnudags: kr. 42.000.- sem deilist niður á heildarfjölda gesta.
Eldhúsgjald: kr. 150.- á mann ca. 12 ára og eldri.
Tjaldsvæði: kr. 800.- á mann og sólarhring 16 ára og eldri.
Sameiginleg innkaup: ca. kr. 100.- á mann 12 ára og eldri.

Hægt er að gista inni í herbergjum í eigin svefnpoka og dynur eru á staðnum líka.

(Dæmi: Hjón með tvö börn undir 12 ára aldri í 2 nætur greiða kr. 3.200.- og svo fastagjaldið sem deilist niður á alla og ef 70manns mæta eru það 600kall á mann Wink )

Keypt verða sameiginleg grillkol, grillolía, kaffi, pappadiskar og fleira.

Ættin hlakka víst til að hittast og er að sjálfsögðu pantað sól og bliðu.

Sjáumst hress í júní  Grin

  

Ákveðið var að systkinabörnin skiptist á að undirbúa mótið og farið verði eftir aldursröð systkinanna. Að þessu sinni eiga börn hennar Guðrunar að sjá um mótið. Í fyrra voru það Sveinsbörn. Hver er þá næst??

« Síðasta færsla | Næsta færsla »

Bæta við athugasemd

Ekki er lengur hægt að skrifa athugasemdir við færsluna, þar sem tímamörk á athugasemdir eru liðin.

Innskráning

Ath. Vinsamlegast kveikið á Javascript til að hefja innskráningu.

Hafðu samband